Laugardaginn 15.apríl 2023 fór í fyrsta sinn fram Landvættur – fjórþraut.

Landvætturin var 10 ára á árinu 2023 og því var ákveðið að bjóða upp á þessa nýju tegund áskorunar. Tveir þátttakendur voru mættir til leiks og lauk annar þeirra þátttöku á tímanum 11:37:44 eða með heildartíma 12:07:44 (4:00:35/2:44:21/1:01:38/3:50:49, samtals skiptitími 0:30:00).

Laugardaginn 13.apríl 2024, var metþátttaka þegar 4 þátttakendur voru mættir til leiks. Luku allir keppni – sigurvegari á nýju brautarmeti var Baldvin Ólafsson á tímanum 10klst og 5 mín. Sjá; https://www.facebook.com/reel/1338732423481527

Laugardaginn 19.apríl 2025 mættu 3 þátttakendur til leiks, sigurvegari var Ingi Freyr Hilmarsson á 11klst og 18 mínútum.

Í Landrisanum eru allar fjórar almenningsíþróttagreinar Landvættaþrautanna í upprunalegum vegalengdum farnar í þessari röð: skíðaganga 50km, hjól 60km, sund 2500m og hlaup 32,7km. Keppendur hafa tíma frá sólarupprás til sólseturs til þess að skila sér í gegnum markið í miðbæ Akureyrar.

Dagsetning fyrir næsta viðburð með fyrirvara er áætluð sunnudaginn 26.apríl 2026 þá með ræs við sólarupprás kl.05:13 og takmarkið er að keppandi hafi lokið allri vegalengdinni við sólarlag kl.21:39 eða á 16klst og 26mín..

Athugið að þessi þraut er sjálfstæður viðburður og hefur ekki í för með sér skráningu í fjölíþróttafélagið Landvættur. Hins vegar er í boði skráning á heimasíðu viðburðarins landvaettur.com, fallegt viðurkenningarskjal og taumerki sem staðfesting á afrekinu.

Skráning og allar fyrirspurnir berist til landvaettur@landvaettur.com

Skráningargjald – kemur í ljós;)

1777180380

  days

  hours  minutes  seconds

until

Landvættur-fjórþraut