Leiðarval getur verið mismunandi frá ári til árs, háð aðstæðum og stemmningu á hverjum tíma. En leitast verður við að hafa það sem líkast fyrsta viðburðinum sem fór fram 15.apríl 2023. Reynsla fyrstu þátttakenda hefur verið almennt góð en tekið hefur verið tillit til fárra athugasemda þeirra.

Skv áætlunum fyrir 2026 verður start við gönguhúsið í Hliðarfjalli við sólarupprás. Skíðaganga 50km með frjálsri aðferð. Þaðan er svo hjólað með stefnu inn Eyjafjörðinn, sjá mynd og endað við Hrafnagilssundlaug þar sem synt er og svo hlaupið þaðan til Akureyrar austan megin og umhverfis Akureyri áður en stokkið er gegnum markið í miðbæ Akureyrar.

Myndir af áætlaðri hjólaleið.

Myndir af áætlaðri hlaupaleið.